HAPPY ENDING!!-Mika-

Jæææja! Fólk alltaf að spyrja mig um passw. á lalla_pjalla og eg nenni ekki að svara mailum frá ykkur, ótrúlegasta fólk að spyrja mann. Allavega sú síða er ekki notuð lengur.
En ég ætla samt að nota þessa smá þegar ég hef tíma.
Allavega það sem er að frétta af mér er það að ég er komin í skóla, enginn átti nú von á þvi held eg, en juju verður maður ekki að testa þetta, er semsagt í IR og þetta er hræðilega kaldur skóli, ég er á upplysinga og fjölmiðlabraut, og ætla að gá hvort það se möguleiki að skipta yfir í hárgreiðslu eftir sumarið, þar sem ég er ekki mikið fyrir það að standa fyrir framan fólk og halda fyrirlestur og þannig! get ekki einusinni sungið fyrir folk, hvað þá þetta.!? Vonandi fæ eg bara inni klipparann, svo eg geti nu farið að klippa ykkur píp;) Svo er ég að vinna hjá Birting, já ég er leiðinlega símasölukonan.
En þetta er ljómandi fín vinna með skóla,er 2.kvöld i viku. Og er svo að leita mer að vinnu aðrahverjahelgi.
Eins og flestir vita dó bróðir minn þann 6.janúar það var hræðilegt, erfiðir tímar og eru ennþá og verða alltaf.
Í gær var mánuður síðan hörmulegasti dagur í lífi minu rann upp. Þegar svona kemur uppá verður maður aldrei sama manneskjan aftur. Ég sakna hanns rosalega mikið, og get ekki beðið eftir að hitta hann þegar minn tími kemur, en þangað til ætla eg að standa mig vel í lifinu, og forðast öll mistök.
 
Ég hef ekki drukkið síðan í nóvember og er ég ekkert lítið stolt, hef ekki einu sinni áhuga á að fá mér í glas.
Magga mín átti prins 1.des og fékk hann nafnið Herbert Snær.  Ég á auðvitað slatta í honum, bara fyrir það að vera alltaf hja þeim.Svo er Magga að fara að detta í það núna á laugardaginn í fyrstask. síðan hún átti,og á að vera svakalegt stelpupartý með FULLT hús af áfengi,og allar í búningum. er að vísu buin að vera veik nánast alla þessa vikuna, og er ennþá, ógleði, höfuðverkur, máttleysi og bara allur pakkinn. Svo ég se mig ekki fært á að mæta þangað, þvi miður. Var farin að hlakka aðeins of mikið til. Ekkert svaka gaman að vera á fyllerí með æluna uppí háls eða já það mun bara ekkert ganga. En ég kíki þá bara á ykkur bytturnar..
En allavega ætlaði bara að skrifa smá svona hingað inn væri nokkuð gaman að fá komment til að sjá hvort einhver ætli að fylgjast með... Því betri sem þið verðið að kommenta því betri verð ég í blogginu;) moahaGlottandi
07. febrúar 2008 klukkan 14:02
LáraN
HeiđrúnSara skrifar ...
Hæ skvísi ánægð með að þú ert farin að blogga aftur. Það verður gaman að fylgjast með. Vertu svo dugleg að setja inn myndir ;)
07. febrúar 2008 klukkan 15:15
Petra Sif skrifar ...
Sammála seinasta ræðu mann ;)! Alltaf gaman að hafa fleir bloggsíður til að skoða ;D
og vonandi verðuru dugleg að setja myndir og hver veit nema slúður líka;)
07. febrúar 2008 klukkan 15:17
Elva Hjelm skrifar ...
Sæl kjella!
Gaman að sjá að þú sért komin í skóla :-) Mér lýst mjög vel á það, en fjölmiðlabrautin heillaði mig líka á sínum tíma... og gerir alveg enn, kannski ég fari íiauglýsingasálfræði eftir þetta nám :-) Aldrei að vita!!! En þú átt líka eftir að standa þig vel í klipparanum ef þú kemst þar inn - er alveg viss um það... en verður bara að passa þig á einu - að tala ekki svo mikið að þú gleymir skærunum og klippir allt af hahah!!!

En já, ég samhryggist þér innilega með bróðir þinn, þetta var áfall fyrir alla í bæjarfélaginu... alltaf erfitt þegar fólk ákveður að fara þessa leið. En einmitt eins og þú segir - líta á það sem er fram undan og reyna að gera eins gott úr því og hægt er gullið mitt!!!

Og..... dyrkkjan er alveg að stíga mér um koll.. er rúllandi hverja helgi og bara alveg að missa mig í gleðinni.... en djöfulli gaman er það :-) hehe...
Skemmtu þér vel um helgina - og gakktu hægt um gleðinnar dyr ef þú færð þér í glas.... og mundu að það getur verið mikið mál að takast á við tilfinningar sínar þegar maður er kominn í glasið og þú ert viðkvæm núna - þannig að ég vona að þú hafir varann á :-)

Með bestu kveðju,
Elva gamla geit!
07. febrúar 2008 klukkan 15:19
Sveinbi skrifar ...
Já hættu að slóra svona í þessu og bloggaðu marr bara um eitthvað sem er krassandi hehe later
kv sveinbi
07. febrúar 2008 klukkan 16:04
Elva fífó skrifar ...
Hæ sæta
langaði bara að segja þér að þú ert algjör hetja :)
sjáumst sem fyrst
love Elva
07. febrúar 2008 klukkan 18:11

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: LáraN
  • Stađur: Vopnafjörđur/ Kópavogur.
  • Atvinna: SímaMella..
  • Hjúskaparstađa: Á lausu, og ekki til í tjéllinn..
  • Um mig: Rautt Hár, Spangir og Frekknur! segja allt sem segja ţarf. Takk fyrir og bless:)
  • Annađ: laragudnad@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan