80's og Palli..
Jææja tími á blogg?
Ég hef nákvæmlega ekkert að blogga um, nema núna á ég heima í Hreyfingu, fer út úr húsi svona hálf 7. Já um morguninn, hver hefði trúað því jæææja og komin heim svona um 7.leitið, ja um kvöldið auðvitað ..Ég og Fanný erum að standa okkur svooo vel sko..
Vinna og ræktin vinna og ræktin. Þetta er rugl fín vinna sem ég er í, og ég elska starfsandann þarna, alveg frábær, bara frábært fólk að vinnna þarna og já bara eitt um þetta að segja : Æði.!
Svo er það Páll okkar Óskar sem ætlar að fokking tröllríða öllu á Nasa á laugardaginn, og tók ég þessa helgi í að spara mig fyrir palla;) Og ekki nó með það þá er afmæli líka 15.mars hjá Ásdísi og Freyju. 80's þema og læti svo maður verður bara alveg bara "halló" niðrí bæ.. En það er bara gaman, ætla hvort sem er að rúlla inná nasa og ekki spyrja hvernig ég kemst út.. En mæli með þvi að allir láti sjá sig þar.
Ööö litið annað að segja frá .. Páskarnir að koma og ég verð ein um páskana, það verður frekar skrítið að fara ekki til Vopnafj.og borða góðann mat og fara á blindafyllerí ..haha Páskarnir 07' ógleymanlegir var svo ónýt daginn eftri að eg gat ekki borðað neitt. Og þurfti að taka páskaeggið mitt með suður því ég var án gríns"þunn" í marga daga á eftir ..En Núna verður maður bara að vinna og sonna, og spurning hvað á ég að gera þessa daga sem ég er í fríi, þessvegna er eg nu buin að vera að taka smá Neighbours pásu svo ég hafi einhvað að gera á meðan fólk er að borða einhvað suddalega gott verð ég uppí rumi með Tölvuna mina og ef eg er heppin þá verða núðlur í skál hja mer..Kózý eða hvað.
Jæja er að spá í að fara að blása á mér hárið og skola sjóvatnið úr bikiníinu minu, mæli svo með þvi að þið skoðið www.hreyfing.is ogkaupið ykkur kort. Lofa því að þið eigið öll eftir að fíla þetta.
-Mútta mútaðu gamla fyrir mig;)
LáraN

Heppiiiin :D!